Um áramótin 2012/2013 sameinuðust Plastprent og Oddi undir nafni Odda. Sameinað fyrirtæki mun bjóða upp á breitt úrval af umbúðum úr plasti og pappa, auk almenns prentverks.
Plastframleiðsla og lagerverslun verða áfram staðsett að Fosshálsi 17, en öll önnur starfsemi svo sem sala og hönnun flyst í hús Odda við Höfðabakka 7.
Lögð er áhersla á að sameiningin hafi sem minnsta röskun í för með sér fyrir viðskiptavini og tengiliðir eru í flestum tilfellum þeir sömu og áður. Bæði fyrirtækin hafa langa sögu í þjónustu við kaupendur umbúða og það er von okkar að sameiningin geri okkur kleift að bæta þá þjónustu enn frekar.
Ef einhverjar spurningar vakna hvetjum við þig til að hafa samband eða koma í heimsókn.
Þú ert hér:


