Oddi hlaut Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu Umhverfisráðuneytisins

 

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhenti Þóru Hirst, gæðastjóra prentsmiðjunnar Odda Kuðunginn fyrir framlag fyrirtækisins til umhverfismála á liðnu ári.
Í máli Sigþrúðar Jónsdóttur, formanns valnefndar Kuðungsins, kom fram að fyrirtækið hefði árum saman unnið eftir ákveðinni umhverfisstefnu, það hefði tekið upp umhverfisstaðla og unnið að því að lágmarka neikvæð áhrif starfseminnar á umhverfi og heilsu.
Á síðasta ári hlaut  fyrirtækið hina norrænu umhverfisvottun, Svaninn. Svanurinn gerir strangar kröfur til prentsmiðja og lítur meðal annars til orku- og efnanotkunar, sorpflokkunar og rýrnunar. Kröfur Svansins til efnanotkunar í prentsmiðjum eru sérstaklega strangar. Svansvottunin nær yfir alla prentþjónustu  Odda og fyrirtækið er fyrsta prentsmiðjan í heiminum sem hefur hlotið Svansvottun á framleiðslu bylgjukassa.
Í Odda er mjög fullkomin sorpflokkun, sem hefur leitt til meiri endurvinnslu og minni urðunarúrgangs. Þá hefur breytt framleiðslutækni leitt til minni efnanotkunar og markvissari stýringu til að lágmarka notkun á hættulegum efnum og tryggja rétta meðhöndlun þeirra.
    

Pappírinn sem notaður er í Odda ber Evrópublómið, umhverfisvottun Evrópusambandsins. Hann er endurunninn eða kemur frá nytjaskógum, þannig að fleiri tré eru gróðursett heldur en þau sem felld eru. Með því er ekki gengið á skógana og nýtingin er sjálfbær. Í tengslum við verkefnið Pappír í sátt við náttúruna er afskurður og pappírs afgangar hjá Odda gefnir í alla leikskóla landsins.
Oddi hefur skýra umhverfisstefnu og til að tryggja að þau skilyrði séu uppfyllt er unnið markvisst að því að allir 250 starfsmenn fyrirtækisins séu upplýstir um umhverfisáhrif sem tengjast rekstri prentsmiðjunnar sem og lög, reglugerðir, staðla og kröfur í umhverfismálum.
Í valnefnd kuðungsins sátu Sigþrúður Jónsdóttir formaður fyrir hönd umhverfisráðherra, Ingunn Þorsteinsdóttir fyrir Alþýðusamband Íslands og Guðbergur

 Frekari upplýsingar um umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins smellið hér