Til fyrirmyndar
![]() | Oddi er eitt af þeim fyrirtækjum sem stendur að baki verkefninu Til fyrirmyndar. Framlag Odda var að prenta umhverfisvæn bréf sem dreift var inn á öll heimili í landinu. Til fyrirmyndar er yfirskrift hvatningarátaks sem tileinkað er frú Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni í tilefni af því að hinn 29. júní eru 30 ár liðin frá því að Íslendingar voru til fyrirmyndar með því að vera fyrstir þjóða til að kjósa konu sem forseta í lýðræðislegum kosningum – konu sem hefur vakið jákvæða athygli fyrir störf sín og framgöngu. Með átakinu eru landsmenn hvattir til að gefa sér tíma til að staldra við og huga að því sem vel er gert, jafnt stóru sem smáu. |

