Prentun, hönnun, bæklingar og prentþjónusta

Umhverfismál

Prentsmiðjan Oddi ehf. hefur verið leiðandi í umhverfismálum hér á landi í prentiðnaði. Umhverfismál hafa ávallt skipað stóran sess í rekstri fyrirtækisins og hafa eigendur þess ávallt leitast við að fara vel með hráefni og draga úr umhverfisáhrifum rekstrarins á skilvirkan hátt. Stefna fyrirtækisins er að viðskiptavinir geti treyst því að sú vara sem við seljum sé framleidd með þeim hætti að sem minnst röskun verði á umhverfinu við framleiðsluna.

Svansvottun Odda Umhverfisvottuð prentsmiðja

Umhverfisvottun Svansins, sem Oddi fékk í desember 2009, er stór þáttur í að tryggja það að Oddi verði áfram í fararbroddi í íslenskum prentiðnaði hvað umhverfismál varðar. Svanurinn vottar að umhverfisáhrif framleiðslunnar eru í lágmarki og að framleiðslan uppfylli kröfur um umhverfi, heilnæmi, gæði og virkni. Til viðbótar eru kröfur um meðhöndlun úrgangs (pappírs og annars sorps), pappírsrýrnun, farfarýrnun og orkunýtingu. Undir ofangreint fellur allt hráefni sem notað er í vinnslunni hjá Odda bæði pappír, kemísk efni og annað. Við hjá Odda megum því tilgreina á allri okkar framleiðslu að prentsmiðjan sé umhverfisvottuð, hvort sem um ræðir bylgjukassa, öskjur, tímarit, bækur eða almennt prentverk. Umhverfisvottun Svansins tryggir framfarir í umhverfismálum og að stöðugt sé unnið að úrbótum í mengunarvörnum.

Umhverfismerkisleyfi Odda

Oddi leggur áherslu á eftirfarandi atriði í rekstri sínum:

  • Að lágmarka umhverfisáhrif framleiðslunnar.
  • Að framleiðslan uppfylli kröfur um umhverfi, heilnæmi, gæði og virkni
  • Að stuðla að endurnýtingu og endurvinnslu þess úrgangs sem til fellur í framleiðslunni, bæði pappírs og annarra efna.
  • Að tæki og búnaður uppfylli ströngustu kröfur um lágmarks orkunotkun.
  • Að framleiðslufyrirtæki sem Oddi er í viðskiptum við hafi vottun í umhverfismálum, hafi sett sér umhverfisstefnu eða vinni markvisst að umhverfismálum.
  • Að uppfylla að lágmarki allar kröfur sem settar eru í gildandi lögum og reglugerðum.

Til þess að tryggja að þessi skilyrði séu uppfyllt vinnum við markvisst að því að allir starfsmenn  séu upplýstir um umhverfisáhrif sem tengjast rekstri fyrirtækisins sem og lög, reglugerðir, staðla og kröfur í umhverfismálum.

Kröfur Svansins gagnvart prentsmiðjum:

  • Samþykkt efni skulu vera að minnsta kosti 95% af allri efnanotkun.
  • Lögð er áhersla á notkun umhverfismerkts eða endurunnins pappírs við prentun. Lágmarka á pappírsúrgang við framleiðslu. Flokkun úrgangs skal vera góð og tryggt að allur hættulegur úrgangur hljóti rétta meðhöndlun.
  • Hvatt er til notkunar endurnýjanlegra orkugjafa og orkunotkun við framleiðsluna lágmörkuð.
  • Lögð er áhersla á að velja sem mest af umhverfismerktri vöru og þjónustu í innkaupum.
  • Gerð er krafa um reglulega þjálfun og fræðslu starfsmanna ásamt ákveðnum ferlum sem stýra umhverfisstarfinu. Fyrirtækið þarf að uppfylla öll lög og reglugerðir sem eiga við starfsemina.

 

Pappírinn sem Oddi notar er vottaður af umhverfisviðurkenningu Evrópusambandsins, EU Eco-label. www.eco-label.com


Framleiðsluferli pappírsins þarf að mæta ströngum kröfum um:

Notkun náttúruauðlinda
Meðferð ónáttúrulegra efna
Orkunotkun
Loft- og vatnsmengun
Úrgangsstýringu
Þar að auki er farið fram á að pappírinn innihaldi aðeins endurunna trefjar og/eða trefjar frá sjálfbærum skógum. Að minnsta kosti 10% trefja koma frá vottuðum endurvinnslu skógum (PEFC, FSC)

Allur pappír sem merktur er Eu Eco-label uppfyllir jafnframt kröfur Svansinns norræna umhverfismerkisinns.
 

          

 

 

 Prentsmiðjan Oddi ehf - Höfðabakka 7 - 110 Reykjavík - Sími 515 5000 - Fax 515 5001 
 Opið 8:00-17:00 mánud. - fimmtud. Föstudaga 08:00-16:30 - Sími eftir lokun skiptiborðs 840 5010