Umbúðir
Oddi framleiðir og hannar allar gerðir umbúða og eru þær eins ólíkar og vörurnar sem þær vernda. Viðskiptavinir leita til Odda með margvíslegar forsendur og þarfir og saman finnum við réttu umbúðirnar.
Oddi framleiðir umbúðir bæði úr öskjuefni sem og bylgjupappa en Oddi er eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir bylgjupappa.
Öskjur eru léttari og henta því mjög vel sem innri umbúðir eða umbúðir utan um minni eða léttari hluti. Bylgjur eru þykkari og sterkari og henta því betur til flutnings og utan um brothættari vörur.
Helstu kaupendur kassa úr bylgju eru fyrirtæki í sjávariðnaði, bæði innlend og erlend, þar sem bylgjupappakassar eru mjög hentugir fyrir flutning á frosnum fiski. Kassar frá Odda eru bæði notaðir í pökkun á sjó og landi og sendir um víða veröld.
Bylgja er auk sjávariðnaðarins mikið notuð sem ytri umbúðir utan um smærri pakkningar t.d. á sælgæti, drykkjarföngum og allskyns matvörum.
Umbúðir eru mikilvægar fyrir ímynd vöru. Máltækið segir „Fötin skapa manninn“ og það má að mörgu leiti færa merkingu máltækisins yfir á vöruumbúðir. Gæði umbúða, áprentun og áferð eru oft ráðandi þáttur í ákvörðun kaupenda og því ber að vanda umbúðaval.
Hér að neðan má sjá myndband frá umbúðavinnslu Odda
Sjá nánari upplýsingar um öskjur og bylgjur með því að smella á samsvarandi hér að ofan.
Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast í síma 515 5000 eða beint hjá sérfræðingum Odda í umbúðalaunum:
Sérfræðingar Odda í umbúðalausnum: Sérfræðingar Odda í umbúðalausnum fyrir fiskiðnaðinn:
| | | | ![]() | ||||
Friðrik Lunddal | Ásbjörn Sveinbjörnsson | Sæþór Ingi Harðarson | Hafsteinn Guðjónsson Viðskiptastjóri hafsteinn@oddi.is b.s. 515 5045 | Örn Valsson Viðskiptastjóri orn@oddi.is b.s. 515 5055 |
|
|
|
| Prentsmiðjan Oddi ehf - Höfðabakka 7 - 110 Reykjavík - Sími 515 5000 - Fax 515 5001 - oddi@oddi.is |


