Oddi framleiðsla
Oddi framleiðsla er prentsmiðjan sem standur á bak við alla framleiðslu Prentsmiðjunnar Odda, Odda í Færeyjum og Oddi Printing Corp í Bandaríkjunum. Prentsmiðjan er ein stærsta og fjölbreyttasta prentsmiðja landsins og hjá henni starfa um 160 manns.
Framleiðsludeild Odda er heildsöluprentsmiðja sem þjónar virtum hópi viðskiptavina, bæði innlendum og erlendum. Vegna framúrskarandi aðstöðu getur Oddi framleiðsla lagað þjónustu sína að þörfum markaðarins á hverjum tíma og bæði boðið meiri gæði og afköst auk lægri kostnaðar. Prentsmiðjan er einstaklega vel tækjum búin og býr að stórum hópi reyndra og vel menntaðra starfsmanna.
Öll framleiðsla Odda er Svansvottuð þá bæði almenn prentun og umbúðir. Framleiðsludeild Odda er fyrsta prentsmiðjan í heiminum sem fær Svansvottun á sína framleiðslu þar sem bylgjuframleiðsla er innifalin. Þetta þýðir að allar þær vörur sem framleiddar eru hjá Odda koma frá umhverfisvottaðri prentsmiðju.
Stjórnendur í framleiðsludeild Odda má finna með að smella hér
|
|
|

