Merkið
Hér er að finna merki Prentsmiðjunnar Odda ehf.
Hægt er að hlaða niður PDF útgáfum af merkinu í CMYK, Pantone 294 eða svart/hvítt (vektor form).
Ef nota á merkið í lágri upplausn, t.d. fyrir skjámiðla, er hægt að hægrismella á myndina af merkinu og vista það niður (gif form).

Um nafnið og merkið
Nafnið er sótt í frægt menntasetur á Rangárvöllum og var kirkjan á Rangárvöllum fyrirmynd merkisins.
Atli Már Árnason listmálari teiknaði merkið og var það fyrst sett upp í húsnæði við Bræðraborgarstíg, þar sem starfsemin fór fram árin 1968 -1981.
Merkið er enn notað í lítið breyttri mynd. Upprunalega var það með stafina „PRENTSMIÐJAN“ í boga fyrir ofan. Á stórafmælum hefur merkið tekið á sig nýja mynd, nú síðast á 60 ára afmæli Odda, en grunnurinn hefur alltaf verið sá sami.
|
|
|
| Prentsmiðjan Oddi ehf - Höfðabakka 7 - 110 Reykjavík - Sími 515 5000 - Fax 515 5001 - oddi@oddi.is |

