Mínar síður

Mínar síður sameina á einn stað þær rafrænu lausnir sem Prentsmiðjan Oddi býður viðskiptavinum sínum upp á. Um er að ræða Vefprent -  vefverslun með prentverk,  rafrænar prófarkir og síðast en ekki síst verkyfirsýn sem sýnir verkstöðu þeirra verkefna sem eru í vinnslu hjá prentsmiðjunni. - minar.oddi.is

 

Vefprent – Nútíma prentkaup -www.vefprent.is
Vefprent er vefverslun sem tengir saman prentkaupendur og prentsmiðju á einfaldan og áhrifaríkan hátt í gegnum internetið. Prentkaupandi sér um að panta allt sitt prentverk rafrænt á mjög skilvirkan hátt sem leiðir af sér mikinn tímasparnað og lækkun prentkostnaðar. 

 

 

Hvað er Vefprent?

  • Vefverslun með prentverk
  • Allt prentverk á sama stað
  • Lægra verð
  • Tímasparnaður sem dregur úr kostnaði
  • Fullkomin yfirsýn
  • 24 stunda aðgengi í gegnum internetið
  • Ekki þörf á sérstöku forriti
  • Fullkomin viðskiptasaga
  • Aðgangsstýring við innskráningu
 Innskráning
   Aðgangsstýring tryggir að mismunandi starfsmenn, deildir eða útibú hafa eingöngu aðgang að sínu efni

Þar sem allt prentefni er á einum stað er fullkomin viðskiptasaga aðgengileg í gegnum vefprentið. Hægt er að sjá hvað var keypt, hvenær, hver pantaði, hvert það var sent og hvað það kostaði, svo einhver dæmi séu tekin.

 

 Innkaupakarfa Kaupyfirlit
 Notendavænt umhverfi Nákvæm viðskiptasaga aðgengileg í gegnum vefprentið

 

 

Rafrænar prófarkir – Softproof
Með tilkomu rafrænna prófarka eru verk samþykkt í gegnum vefinn. Það styttir samþykktarferlið þar sem ekki þarf að sendast með útprentanir og bíða eftir að fá þær sendar til baka.

  Rafrænar prófarkir  Rafræn próförk
 Skýrt yfirlit yfir þær síður sem þarf að samþykja Prófarkir er samþykkar eða þeim hafnað með einum músasmell. 

 

Ef óskað er eftir breytingum á próförk er auðvelt að skoða eldri útgáfur til að fullvissa sig um að breytingar hafi örugglega skilað sér inn.
Öll verkefni sem fara í gegnum rafrænar prófarkir eru geymd og eru því aðgengileg aftur í tímann sé þess óskað. 

 

Verkyfirsýn
Oddi notast við rafræna skráningu verkefna sem gefur upplýsingar um hvar verkefnið er staðsett í framleiðsluferlinu.  Með þessu móti er alltaf hægt að sjá stöðu hvers verkefnis fyrir sig í gegnum mínar síður.

 Framleiðsluferli verka
  Skýrt yfirlit yfir þau verkefni sem eru í vinnslu í prentsmiðjunni og hvar þau eru staðsett í framleiðsluferlinu.

 

 

 
 
Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2011