Litir og fontar

Svarthvítar og dúómyndir

Mynd sem skal prentast svarthvít í einum lit á að vista sem grayscale, ekki RGB eða CMYK, og dúótone mynd sem svart + Pantone.

Letur (fontar)

Open Type, True Type og Type 1 (postscript) eru þeir fontar sem við teljum ­öruggasta í notkun og mælum með að viðskiptavinir okkar noti.

Notkun lita

Vinnið myndir í RGB, við tökum einnig við CMYK myndum en mælum með að nota RGB í myndvinnslu.
Vinnið vektor gögn í CMYK ef verkið á að prentast þannig, leyfilegt er að nota RGB í vektor gögn en alls ekki í svartan texta.
Notið Pantone litina í sérlita verkefni.
Undir stóra svarta fleti ráðleggjum við að settur sé t.d. 40% Cyan ef fjöldi prentlita leyfir, til að ná fallegri áferð.

Nánari upplýsingar um RGB vinnsluferli mynda:

Samtök iðnaðarins - RGB

 
 
 

Prentsmiðjan Oddi ehf - Höfðabakka 7 - 110 Reykjavík - Sími 515 5000 - Fax 515 5001 - oddi@oddi.is
Opið 8:00-17:00 mánud. - fimmtud. Föstudaga 08:00-16:30 - Sími eftir lokun skiptiborðs 840 5010