Góður pappír
| |
PAPPÍRINN Í ODDA KEMUR FRÁ NYTJASKÓGUMÞað er útbreiddur misskilningur að framleiðsla pappírs eyði skóglendi. Þvert á móti eru fleiri tré gróðursett í staðinn fyrir þau sem felld eru í nytjaskógum. Meginhluti trjánna fer til að framleiða timbur í húsbyggingar, innréttingar, gólfefni og húsgögn. Kurlaðar trjágreinar, afskurður og sag eru nýtt til pappírsframleiðslu.
SKÓGLENDI Í VÖRN OG SÓKN
|

FAO 2006
Oddi kaupir aðeins af ábyrgum pappírsframleiðendum
Timbur- og pappírsframleiðendur planta nýjum trjám í staðinn fyrir þau sem felld eru vegna framleiðslunnar. Fyrir vikið er framleiðslan sjálfbær og ekki er gengið á skógana.
Pappírinn sem Oddi notar er vottaður af umhverfisviðurkenningu Evrópusambandsins, EU Eco-label. Framleiðsluferli pappírsins þarf að mæta ströngum kröfum um:
Þar að auki er farið fram á að pappírinn innihaldi aðeins endurunna trefjar og/eða trefjar frá sjálfbærum skógum. Að minnsta kosti 10% trefja koma frá vottuðum endurvinnslu skógum (PEFC, FSC) Allur pappír sem merktur er Eu Eco-label uppfyllir jafnframt kröfur Svansinns norræna umhverfismerkisinns. | ![]() |
SJÁLFBÆR PAPPÍRSFRAMLEIÐSLAPrentpappírinn sem Oddi notar kemur meðal annars frá UPM-Kymmene, sem er einn stærsti pappírsframleiðandi heims. UPM hefur sjálfbærni að leiðarljósi í allri starfsemi sinni, á öllum stigum frá öflun hráefnis til flutnings framleiðslunnar. |
HÓFLEG PAPPÍRSNOTKUN ÍSLENDINGASamantekt Matvæla- og viðskiptastofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) árið 2005 sýnir að Íslendingar nota pappír hóflega miðað við margar aðrar vestrænar þjóðir.
| ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
NOTKUN SKÓGA HEIMSINSInnan við tíundi hluti skógnýtingar heimsins fer til að framleiða pappír, pappa, spónaplötur og skyldan varning úr trjákurli. Framleiðendur timburs og pappírs gróðursetja tré í staðinn fyrir þau sem eru felld.
| ENDURVINNSLA PAPPÍRS Á ÍSLANDI
HEIMILD: SORPA, ÁRSSKÝRSLA 2006. |
|
|
|
| Prentsmiðjan Oddi ehf - Höfðabakka 7 - 110 Reykjavík - Sími 515 5000 - Fax 515 5001 - oddi@oddi.is |


