Þjónustuloforð Odda

ÞJÓNUSTA – Þegar  þú ert komin í viðskipti við Odda ertu í öruggri höfn.
•    Við sýnum öllum viðskiptavinum fulla athygli, jafnt stórum sem smáum.
•    Við gefum raunhæf loforð og stöndum við þau.
•    Við komum hreint fram ef vandamál koma upp.
•    Við sýnum frumkvæði í því að rækta sambandið.
•    Við höfum samskipti óþvinguð og á máli sem viðskiptavinir skilja.

SVARTÍMI – Við miðum svartíma við þarfir viðskiptavinarins en ekki okkar hefðir og venjur.
•    Við svörum öllum fyrirspurnum strax.
•    Ef aðstæður eru sérstakar er svarað í síðasta lagi innan tveggja klukkustunda.
•    Flóknari tilboðsbeiðnum er svarað innan fjögurra klukkustunda, en strax látið vita að beiðnin sé móttekin og verið sé að vinna í málinu.

SÍMSVÖRUN – Allir sem hringja í okkur fá afgreiðslu á sínum málum.
•    Ef við getum ekki tekið við símtali er í öllum tilfellum boðið uppá annan valkost, aðstoð frá öðrum starfsmanni eða skilaboð.

ÚTLIT HÚSNÆÐIS – Við höfum útlit húsnæðis þannig að það sé okkur til sóma.
•    Hver starfsmaður ber ábyrgð á útliti sinnar starfsstöðvar og nánasta umhverfis.
•    Sá sem boðar fund ber ábyrgð á því að taka til í fundarherbergi eftir fund.

VANDAMÁL – Við lítum á vandamál sem tækifæri til að gera enn betur.
•    Við leysum vandamál þannig að:
–    sambandið við viðskiptavin verði sterkara en áður
–    þjónusta okkar sé betri en áður

SAMSTARFSFÓLK – Við berum virðingu fyrir störfum, skoðunum og tíma hvers annars og gleymum því ekki að við erum í sama liðinu.

Gildi hjálpa okkur við að taka ákvarðanir í daglegu starfi.
HEIÐARLEIKI – METNAÐUR – LIPURÐ

 
 
Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2011